1372
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1372 (MCCCLXXII í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Eyja myndaðist í eldgosi norðvestan við Grímsey. Eyja þessi hefur líklega verið suður af Kolbeinsey en þar eru nú grynningar sem kallast Hóll.
- Andrés Sveinsson varð hirðstjóri yfir öllu Íslandi.
- Þorsteinn Eyjólfsson varð lögmaður norðan og vestan þriðja sinni.
- Erlendur Halldórsson var kjörinn príor í Möðruvallaklaustri.
- Klofa-Oddur tekinn af lífi fyrir mörg illvirki, að því er segir í Flateyjarannál.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þórður Bergþórsson, príor í Möðruvallaklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. mars:
- Karl 4. keisari heilaga rómverska ríkisins viðurkenndi Loðvík 1. af Ungverjalandi sem konung Ungverjalands, Króatíu og Póllands.
- Heilög Birgitta lagði af stað frá Ítalíu í pílagrímsferð til Landsins helga. Hún var í Betlehem í ágúst og var komin aftur til Ítalíu í desember.
- 22. júní - Hundrað ára stríðið: Orrustan við La Rochelle þar sem Englendingar biðu ósigur fyrir sameinuðum flota Frakka og Kastilíumanna. Frakkar réðu Ermasundi í fyrsta sinn síðan 1340.
- 20. ágúst - Konungsríkið Sikiley og Konungsríkið Napólí skrifuðu undir friðarsamning.
- Þýska borgin Aachen varð fyrst til þess í heiminum að láta slá fyrir sig mynt með ártali.
- Borgin Phnom Penh var stofnuð í Kambódíu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 13. mars - Loðvík af Valois, hertogi af Orléans, sonur Karls 5. Frakkakonungs (d. 1407).
- 9. desember - Beatrís af Portúgal, síðar drottning Portúgals og Kastilíu (d. 1410).