Visitar URL original
1407 - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald

1407

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár

1404 1405 1406 – 1407 – 1408 1409 1410

Áratugir

1391–1400 – 1401–1410 – 1411–1420

Aldir

14. öldin – 15. öldin – 16. öldin

Jóhann óttalausi, Búrgundarhertogi.

Árið 1407 (MCDVII í rómverskum tölum)

  • 21. febrúar - Ming-Víet-stríðið: Víetnamar gerðu gagnárás á kínverska flotann en Kínverjar notuðu fallbyssur til að granda skipum þeirra og misstu Víetnamar allt að 10.000 menn. Kínverjar náðu síðar yfirráð yfir landinu.
  • 23. apríl - Banco di San Giorgio, fyrsti bankinn í nútímalegum skilningi var stofnaður í Lýðveldinu Genúa á Ítalíu.
  • 20. nóvember - Samið um vopnahlé milli Jóhanns hertoga af Búrgund og Loðvíks hertoga af Orléans.
  • 23. nóvember - Loðvík af Orléans var myrtur á götu í París að undirlagi Jóhanns óttalausa. Hratt það af stað stríði á milli Orléans og Búrgundar.
  • Desember - Yongle-alfræðiorðabókin var fullrituð í Kína af yfir 2.000 fræðimönnum.
  • Karl af Valois varð hertogi af Orléans.
  • Galdrabrenna á Grænlandi: Kolgrímur nokkur brenndur fyrir að hafa legið með giftri konu, Steinunni dóttur Hrafns Bótólfssonar lögmanns. Hún var ein Íslendinganna sem sátu fastir á Grænlandi 1406-1410. Átti hann að hafa komist yfir hana með göldrum. Steinunn missti vitið og lést skömmu síðar.